Eftir mikla pressu undanfarna daga þá fékk ég loksins meðlimi
dómnefndar til þess að skila inn sínum niðurstöðum. Eins og
áður var kynnt hér á síðunni þá var spilað í riðlum þar sem allir
kepptu við alla og dæmdi dómnefnd samviskusamlega hverja viðureign
fyrir sig. Hver mamma gat því mest fengið þrjú stig út úr
hverri viðureign eða mest níu stig í það heila. Annars ætti
þetta að skýra sig sjálft og koma úrslit riðlanna hér að neðan og
smá ummæli dómnefndar fyrir neðan hvern riðil, Sævar skilaði þó inn
mun ítarlegri umfjöllun en aðrir eins og sjá má. Góða
skemmtun...
Riðill A:
1. Sæti Ingibjörg (Maggi Pera) = 7
stig
2. Sæti Sigrún (Tryggvi) = 5 stig
3. Sæti Kolla (Kalli) = 4 stig
4. Sæti Ragnhildur = 1 stig
Kolla
- Ragnhildur - Staðreyndin að Kolla sé miðaldra kona sem hamrar
ljósabekkina er eitthvað sem ég dáist af. Hefur alið þrjá
toppdrengi og greinilega staðið sig vel í
uppeldinu. Ljósabekkirnir hafa vinninginn.
Ingibjörg
- Sigrún - Ingibjörg hefur af sögum Magga marga fjöruna sopið.
Óhefðbundið vs Hefðbundið myndi ég segja. Ingibjörg tekur þennan en
Sigrún var skeinuhætt.
Ragnhildur - Sigrún - Þetta mun vera klár
systra-mömmuslagur. Regludýrkunin hefur vinninginn – en ég heillast
mikið af Sigrúni að ná að hafa matinn á slaginu. Fastir liðir sem
þessi eru uppbyggilegir og gefa börnunum ákveðna festu og
öryggistilfinningu.
Ingibjörg er sigurvegarinn í þessum riðli og það örugglega, enda
mikið afrek að umgangast tvær perur. Skammt undan kemur svo Sigrún
og er það aðallega af því að vera einstaklega stundvís með matinn,
ekki eina mín í eða yfir heldur á slaginu
sjö.
Riðill B:
1. Sæti Jóhanna (Valur og Haukur) = 8
stig
2. Sæti Brynja (Sævar og Biggi) = 7
stig
3. Sæti Elín (Andrés) = 2 stig
4. Sæti Jóna (Gunni Örn) = 1 stig
Jóhanna - Brynja - Jóhanna tekur þessa
viðureign, fyrir það eitt að sækja okkur alltaf í bæinn þegar maður
er orðinn alveg útúr djammaður. Brynja er þó einnig gríðarlega
sterk, en henni til trafala er það að maður er alltaf skít hræddur
við hana.
Brynja - Elín - Brynja tekur þessa viðureign
eins og henni einni er lagið. Strax frá fyrstu mínutu kom hún af
mikilli festu inn á völlinn, rétt eins og þegar hún gengur inn í
Einræðisríki sitt V-70.
Jóhanna - Jóna - Hér mætir Jóna ofjarla sínum,
rétt eins og þegar hún gengur framhjá sjónvarpinu á meðan
karlpeningurinn á heimilinu horfir á enska boltan.
Jóhanna er Best í þessum riðli og er ekki mikið neikvætt um hana
að segja, reyndar bara allt mjög jákvætt. Fast á hæla hennar kemur
svo Brynja sem stjórnar heimili sínu eins og herforingi, enda
köllum mamma af öllum á heimilinu, einnig af eiginmanni sínum.
Riðill C:
1. Sæti Anna (Gissur) = 9 stig
2. Sæti Magga (Elli) = 4 stig
3. Sæti Erna (Gunni Jarl og Davíð) = 3 stig
4. Sæti Sigurveig (Jói) = 2 stig
Magga - Erna - Mamma hans Ella á því miður ekki
séns.... svo það er Erna sem tekur þetta. Geri mér það í hugarlund
að hún hafi verið tígulegur kvennmaður á sínum tíma - Pípan gert
gott mót þar. Hefur alið fjögur kvikindi (þ.a.m yfirgeðsjúklinginn
Gunnar Jarl). Heimilishaldið er reyndar ekkert spes,
óhreinatausfjöll sem fá mömmu hans Ása til að finna til mátt- og
vonleysi.
Anna
- Sigurveig - Þekki Önnu mjög vel enda búin að fylgja Gissa upp
alla yngri flokka þar sem hún var dugleg að öskra “Áfram Gissi” og
koma með gullmola.... Sigurveig er óskrifað blað í mínum bókum en
staðreyndin að hún horfi á Enska boltann gerir hana samkeppnishæfa
og vel það. Anna tekur þetta þó á seiglunni.
Magga - Sigurveig - Sigurveig tekur þennan. Þekki
báða keppendur lítið sem ekkert. Annars vegar er það Fellaperrinn
eða Veislustjórinn - báðir eðalpiltar. Þegar upp er staðið er það
ástríðan fyrir mat og enska sem fleytir mömmu Veislustjórans (Jóa)
áfram.
Hvað getur maður sagt, Anna Alfreðs er án efa ein litríkasta mamman
í keppninni og einkar góð í Country dönsum og hefur heyrst að hún
stefni á tilil í þeirri grein á heimsmeistaramótinu. Með
henni áfram í 8 mömmuúrslitin fer svo Magga, en þeir sem ekki vita
hver Magga er þá er hún móðir fellaperrans ógurlega og það er ekki
auðvelt verk.
Riðill D:
1. Sæti Erla (Ási og Gæi) = 8 stig
2. Sæti Lóa (Kjarri) = 5 stig
3. Sæti Herdís (Dúddi) = 3 stig
4. Sæti Sigga (Freysi) = 2 stig
Herdís - Lóa - Lóan hefur sigurinn enda hafa
leiðir okkar oftar legið saman og hrífst ég af henni. Herdísi
kynntist ég fyrst í áramótateiti Kalla Haagensen og var það nokkuð
vandræðalegt andartak...
Erla
- Sigga - Hér mætast stálin stinn. Hinsvegar gamli skólinn
(húsmæðraskólinn líklega) á móti hinni svokölluðu nútímakonu.
Sigríður er þokkafullur kvennmaður og gæti tælt margan manninn en
hér á þessu blaði er það gestrisni Erlu sem hefur
vinninginn.
Herdís - Erla - Erla tekur þennan þótt Herdís sé
virkilega göfugur kvennmaður sem greinilega var mikill kvennkostur
á sínum tíma. Hinsvegar er það Erla sem hefur sigurinn hér enda
kjarnorkukvendi mikið að ala, elda ofaní, þrífa af og halda
Unufelli 13 gangandi á öllum smurðum.
Lóa - Sigga - Þekki Lóuna sem afbragðskonu sem býr
á Viktoríutímabilinu. Drýgir kartöflusalatið með soðnum kartöflum
sem sýnir framá fjármálavit og afbragðs hússtjórn. Það er vanmetinn
kostur að mínu mati. Heimilishald í Unufellli 33 var ekki tipp topp
og má þar nefna að engir pennar voru í húsinu og sjaldan eitthvað
bitastætt til að malla sér í ískápnum. Líkist Lóa mikið henni móður
minni skynja ég - fátt sem framhjá henni fer og mikill
dugnaðarforkur í heimilshaldinu. Nútímakonan Sigríður Þóra er enn í
blóma lífsins, Hallgerður Langbrók nútímans mætti segja.
Stormasamur kvennmaður veit ég og staðreyndin að Kartan skyldi máta
géjara af henni forðum daga er henni í hag en Lóu í óhag því
greinilegt e-að Kartan missti þar af einhverri kennslustund í hvar
draga skal mörkin 
Herdís - Sigga - Sigríður tekur þenna slag nokkuð
auðveldlega en gaman hefði verið að þessar blómarósir hefðu mæst
báðar í fullum blóma eða eins og nýútsprungnar rósir þá hefði verið
erfiðar að gera uppá milli. En Sigríður hefur
sigur.
Lóa - Erla - Erla tekur þennan slag og því Lóa sem
situr eftir með sárt enni. Erfitt að skilja hana eftir, enda
toppkona í alla staði af mínum kynnum af henni. Erla er hinsvegar
eins og áður hefur komið fram einfaldlega of stór biti í þetta
skiptið og því úrslitin skýr og skilmerkileg.
Dauðariðillinn hefur talað sínu máli. Þær Erla og Lóa fara áfram
eftir margar rosalegar viðureignir.
Látum þetta duga að sinni, en endilega haldið áfram að koma með
mömmusögur...OUT.